Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, skrifar á Facebook um nýafstaðið prófkjör þar sem hann hlaut annað sæti, en stefndi á það fyrsta. Ásmundur hefur áður sagt Pál Magnússon, sigurvegara prófkjörsins, vera innmúraðan krata. En Ásmundur er þakklátur.
„Prófkjör hafa góða kosti sem jafnframt eru stóru gallarnir. Það er aðeins einn sem getur sigrað og fáir komist í örugg sæti á listum. Þeir sem eftir sitja sleikja sárin. Grimmdin getur farið út fyrir öll mörk og vinabönd eru slitin en vonandi gróa þau með tímanum. Ég er þakklátur fólkinu mínu fyrir stuðninginn, fólkinu sem gaf mér atkvæði og fólki fólkinu sem hjálpaði mér við alla vinnuna. Ég er þakklátur fyrir niðurstöðuna og það traust sem mér er sýnt.“
Ásmundur óskar Páli Magnússyni til hamingju „...með glæsilegan kosningasigur í Suðurkjördæmi og velfarnaðar við að leiða listann. Þakka meðframbjóðendum mínum samstarfið og óska þeim góðs gengis. Pólitík er er spurning um stöðu og áhrif þar sem enginn á neitt. Eðlilega verða skiptar skoðanir um niðurstöðuna en í enda dagsins verður mikilvægast fyrir Suðurkjördæmi að leggja fram þann lista sem er sigurstranglegastur í kosningunum í haust. Lista sem endurspeglar kjördæmið til að fá sem viðtækasta sátt og baráttuhug fyrir allt kjördæmið svo við vinnum saman að sigri Sjálfstæðisflokksins í kosningunum 29. október nk. Þar ganga hagsmunir flokksins fyrir.“