Grikkland metið verra en rusl

Grikkir mæta örlögum sínum í dag en þeir hafa nú aðeins fáeinar klukkustundir til að gera skil í hálfum öðrum milljarði evra láni sem gjaldfellur í dag á ríkissjóð landsins.

Sjaldan eða aldrei hefur nokkur önnur Evrópuþjóð verið metin jafn lágt af fjármálamörkuðum heimsins eins og þessi fyrrum vagga vestrænnar menningar vip rætur Akropolis. En stjórn þeirra þvertekur fyrir að mæta þeim afarkostum sem henni bjóðast og ætlar þjóð sinni að meta skilyrði lánardrottna fyrir lengingu lána um næstu helgi, kjósi hún gegn þeim er myntsamsgarfið við Evrópu líklega úr sögunni og óvíst með aðild þess að Evrúpusambandinu.

Og staðan er þessi: Matsfyrirtækin Standard og Poors lækkaði í gærkvöld lánshæfismat gríska ríkisins enn frekar í ruslflokk vegna þeirrar ákvörðunar að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um skilmála lánardrottna. Fitch Rating lækkaði lánshæfismat fjögurra stærstu banka landsins. Lánshæfismatið fer úr þreföldu C - sem er rusflokkurinn - niður í þrefalt C mínus. Standard og Poors telur að með ákvörðun um þjóðaratkvæði hafi stjórn Syriza flokksins ákveðið að setja landspólitík ofar fjárhagslegum og efnahagslegum stöðugleika, endurgreiðslu lána og aðild að evrusamstarfinu.

Á morgun eiga Grikkir sem fyrr segir í síðasta lagi að greiða Alþjóðagjaldeyrissjóðnum hálfan annað milljarð evra af lánum sem hann veitti. Þeir hafa sagt að það verði ekki gert og að þjóðaratkvæðagreiðslan verði um næstu helgi. Evrópuleiðtogar segjast ekki átta sig á því um hvað hún snúist, nema þá helst aðild að evrusamstarfinu eða ekki.

Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, sagði í sjónvarpsviðtali í kvöld að með þjóðaratkvæðagreiðslunni yrði gríska stjórnin betur vopnum búin fyrir frekari samningaviðræður. Hann sagðist standa og gfalla með atkvæðagreiðslunni; ef gríska þjóðin samþykkti skilmála lánardrottna myndi hann víkja úr embætti.

Þúsundir tóku þátt í fjöldafundi fyrir utan þinghúsið í Aþenu í kvöld þar sem lýst var yfir stuðningi við aðgerðir stjórnarinnar.

Verðlækkun varð á Evrópumörkuðum í dag vegna óvissunnar um aðild Grikkja að evrusamstarfinu. Í Bandaríkjunum lækkaði DowJones vísitalan um tæp tvö prósent, S&P um rúm tvö prósent og Nasdaq um tvö komma þrjú þegar lokað var fyrir viðskipti í gærkvöld.