Frestur þeirra til að greiða afborgunina, sem nemur 1.5 milljarði evra rann út kl. 22:00 í gærkvöld. Ekki kom til hennar og því blasir við formlegt greiðslufall Grikklands.
Gerry Rice, talsmaður AGS, sagði í samtali við AFP fréttaveituna rétt eftir að greiðslufresturinn rann út að engin greiðsla hefði borist frá Grikkjum. Rice segir að framkvæmdastjórn sjóðsins hafi verið gerð grein fyrir því. Grikkir séu komnir í vanskil og fái ekki frekari fjármögnun frá AGS fyrr en það verði gert upp.
Standa nú öll spjót á grikkjum: Fyrr í kvöld lækkaði matsfyrirtækið Fitch Rating lánshæfismat gríska ríkisins úr CCC í CC - sem er einum flokki fyrir ofan algjört greiðslufall. Telur Fitch Rating að þar sem viðræður Grikkja og lánveitenda hafi siglt í strand sé alls óvíst að Grikkir geti staðið við skuldbindingar sínar á næstu mánuðum.
Fjölmenni var fyrir utan þinghúsið í Aþenu í gærkvöld þar sem á þriðja tug þúsunda mótmælenda lýstu yfir óánægju sinni með aðgerðir sitjandi stjórnar og vilja til að halda í evruna sem gjaldmiðil Grikkja. Annar fjöldafundur var haldin við þinghúsið á sunnudaginn þar sem stuðningsmenn stjórnvalda komu saman. Á fundinum í gærkvöld var fólk hvatt til að samþykkja skilmála láveitenda í þjóðaratkvæðagreiðslunni á sunnudaginn.
Alexis Tsipras forsætisráðherra og aðrir ráðherrar í stjórn hans hafa hvatt Grikki til að hafna þeim. Evrópusambandið hefur lagt hart að grísku stjórninni að breyta þeirri stefnu.
Fjármálaráðherrar evruríkjanna hafa ekki hafnað að fullu hugmyndum Grikkja frá í dag um nýtt neyðarlán úr stöðugleikasjóði Evrópusambandsins - þeir vildu aftur á móti ekki samþykkja það áður en fresturinn í kvöld rynni út. Fjármálaráðherrarnir funda aftur um málið í dag.