Matteo Renzi, forsætisráðherra Ítalíu, ræddi einnig við fréttamenn að loknum fundinum í gærkvöld. Hann kvaðst vonast til þess að fundurinn á sunnudag yrði sá síðasti um vanda Grikklands. Hann væri vongóður um að samkomulag gæti náðst þá, og málið fengið farsælan endi.
Angela Merkel Þýskalandskanslari sagðist ætla að Grikkir myndu þegar á morgun óska eftir nýju neyðarláni til margra ára, með viðeigandi tillögum um aðgerðir í efnahagsmálum.
Bæði fjármálaráðherrar og forsætisráðherrar evruríkjanna funduðu um málefni Grikklands í Brussel í dag en sendinefnd Grikkja kom tómhent til fundar, án nýrra tillagna um lausn á skuldavanda ríkisins.
Hætta er á upplausn í Grikklandi ef ekki næst samkomulag um næstu skref fljótlega, segir seðlabankastjóri Frakklands, Christian Noyer: \"Gríska hagkerfið er á barmi bjargbrúnar. Það er algjörlega nauðsynlegt að samkomulag náist á sunnudag því það verður of seint líði lengri tími og afleiðingarnar verða alvarlegar,“ sagði Noyer í viðtali við franska ríkisútvarpið í morgun. Hann óttast óeirðir og upplausn í landinu.