Í plagginu gefa gríska stjórnin annars ádrátt um að hækka bæði virðisaukaskattsprósentu í landinu og eftirlaunaaldur, en það er nokkuð sem gríska stjórnin hefur til skamms tíma kallað algjörlega óásættanlegar kröfur. Sáttatónninn í grísku sendinefndinni og bjartsýni viðsemjenda þeirra í kjölfarið um að samningar náist á næstu sólarhringum varð til þess að hlutabréfamarkaðurinn í Aþenu tók kipp og hefur hlutabréfavísitalan hækkað um 9%.
Fjármálaráðherrar Evruríkjanna hittast á morgun, miðvikudag, til að ræða þetta nýjasta útspil Grikkja.
Þýska stórblaðið Der Spiegel greinir frá því að óbreyttir þingmenn og félagar Tsipras og Varoufakis í Syriza flokknum séu langt í frá ánægðir með tilslakanir forystusveitarinnar. Margir þeirra hyggist greiða atkvæði gegn öllum tillögum sem á einhvern hátt vegi að velferð almennings í Grikkalandi, enda sé slíkt þvert á stefnu og loforð flokksins.