Gríðarlegur verðmunur á fiskverði

Gríðarlegur verðmunur er á fiski milli verslana. Mesti verðmunurinn var 132 prósent en oftast var 40-80 prósent verðmunur. 

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðsamanburð á fiski í fiskverslunum og fiskborðum um land allt 7.mars síðastliðinn eða á miðvikudaginn síðasta.

Gerð var úttekt á verði í 18 fiskverslunum og fiskborðum matvöruverslana víðsvegar um landið. Mesti verðmunurinn var 132 prósent en sá minnsti 21 prósent en algengast var að verðmunurinn væri á bilinu 40-80 prósent eins og fyrr segir.

Litla fiskbúðin í Hafnarfirði var með lægsta verðið í flestum tilfellum eða í 13 af 24 á meðan hæsta verðið dreifðust meira yfir verslanirnar. Minnsta úrvalið af þeim tegundum sem könnunin náði til var í Fylgifiskum en það mesta í Litlu fiskbúðinni í Hafnafirði. Verstu verðmerkingarnar voru í versluninni Gallerý Fiskur en þar voru engar af þeim vörum sem kannaðar voru verðmerktar þegar verðlagseftirlitið bar að garði.

Tvær verslanir neituðu þátttöku í könnuninni, Fiskikóngurinn og Fiskbúðin Vegamót. Sjá nánar um niðurstöðurnar hér