Gríðarleg aukning er á bálförum í stað kistugrafa á Íslandi og sér ekki fyrir endann á þeirri þróun að sögn forstjóra Kirkjugarða Reykjavíkur. Þetta kemur í svari hans til upplýsingaveitunnar spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar.
Í fyrra voru 41% duftkersgrafir til móts við 59% kistugrafir á höfuðborgarsvæðinu en á landsvísu er hlutfallið aðeins öðruvísi, eða 27% duftkersgrafir í samanburði við 73% kistugrafir.
Til samanburðar má benda á að fyrir tuttugu árum síðan, var hlutfall duftkersgrafa 9%.