Kostar forsetaframboð 100 milljónir?

Svanur Kristjánsson, prófessor í stjórnmálafræði og kosningastjóri Pírata fyrir síðustu þingkosningar, hefur tekið saman upplýsingar um kostnað við forsetaframboð. Niðurstaða hans er að einn lærdómur frá forkosningum fyrir forsetakosningar í Bandaríkjunum sé að peningar og auglýsingar skipti máli en ekki öllu. Sama saga sé hér á landi þegar kemur að baráttu um Bessastaði.

Svanur rekur í samantekt sinni sem hann birtir á eigin fésbók að að í forsetakosningum 1996  hafi Ástþór Magnússon sem enn hyggst bjóða sig fram nú fengið 4422 atkvæði (2,7%). Kosningabarátta Ástþórs hafi kostað um 40.000.000 kr. á verðlagi ársins 1996 eða tæplega 10.000 kr. á hvert atkvæði. Framreiknað til núvirðis hafi hvert atkvæði kostað Ástþór um 25.000 krónur og vitnar prófessorinn þar í upplýsingar frá Hagstofunni.

Ólafur Ragnar eyddi um 36 milljónum í sína kosningabaráttu árið 1996 eftir því sem fram kemur hjá Svani. Framreiknað kostaði baráttan um 90 milljónir króna. Hvert atkvæði hafi því kostað um 500 kr. á atkvæði (alls 68.370 atkvæði).

Svanur segir í færslu sinni á facebook að eftirspurnin ráði úrslitum forsetakosninga en ekki framboðið. Vilji einstaklings til að verða forseti skipti einn og sér litlu. Sigursæl forsetaframboð spretti úr grasrót íslensks þjóðfélags. Hver og einn forseti Íslands hafi fyrir kosningu áunnið sér traust og virðingu samferðarfólks fyrir vel unnin störf í samfélaginu.

Þá fer Svanur nokkrum orðum um gamlar syndir, Internetið og líkin í lestinni sem ekki megi fylgja sigursælum frambjóðanda. Ferill forsetaframbjóðenda verði kannaður sem aldrei fyrr. Netið gleymi engu.

Að lokum segir Svanur að skoðanakannanir bendi til yfirburðastöðu Katrínar Jakobsdóttur. \"Ef hún gefur kost á sér sé ég ekki neinn sem gæti fengið
meira fylgi í komandi forsetakosningum.\"