Grétar og björgvin minnast einars braga: féll frá langt fyrir aldur fram – „minnumst hans með þakklæti og virðingu“

Einn okkar fremsti tónlistarmaður, Einar Bragi Bragason er látinn, aðeins 54 ára að aldri. Einar Bragi tengdist tónlist með einum eða öðrum hætti nánast alla sína ævi. Hann var skólastjóri Tónlistarskóla Vesturbyggðar og þá var hann einn af meðlimum hinnar geysivinsælu hljómsveitar, Stjórnin en Einar var saxófónleikari sveitarinnar. DV greinir frá andláti Einars.

Þá minnast margir Einars Braga á samskiptamiðlum. Grétar Örvarssonar söngvari í Stjórninni segir um Einar Braga:

„Það er sárt að sjá á eftir góðum vini Stjórnin naut hæfileika Einars Braga um árabil. Við Sigga minnumst hans með þakklæti og virðingu og hugsum til ástvina hans á þessum erfiðu tímum. Blessuð sé minning Einars Braga.“

\"\"Björgvin Halldórsson skrifar eftirfarandi minningarorð:

 „Blessuð sé minning Einars. Harmafregn. Spilaði með honum um árabil. Samúðar kveðjur sendum við til fjölskyldu og vina.“

Richard Scobie segir:

„Einar var einstakt ljúfmenni og topp tónlistarmaður. Hans verður sárt saknað. Hvíl í friði, kæri Einar Bragi - þú yndislegi drengur.“

Friðgeir Bergsteinsson segir:  „Góður maður, Einar Bragi fyrrum saxófónleikari Stjórnarinnar, lést langt fyrir aldur fram aðfaranótt föstudagsins. Kynntist Einari Braga þegar hann spilaði með Stjórninni og svo spilaði hann með hljómsveitinni Von frá Sauðárkróki reglulega, þegar ég var vera þeim innan handar. Flottur tónlistarmaður sem ég mun minnast reglulega þegar ég hlusta á lögin sem hann samdi.“

Björn H. Reynisson skrifar:

„Við Einar kynntumst í mínum heimabæ Seyðisfirði. Við brölluðum ýmislegt saman. Spiluðum í leikriti, við vorum alltaf að róta saman, spiluðum í brúðkaupum og svo vorum við saman í hljómsveitinni Þáþrá sem spilaði í nokkur ár. Þáþrá tímabilið var frábært og við öll í hljómsveitinni eigum eftir að minnast hvað var mikið hlegið og við skemmtum okkur vel. Hæfileikar þínir voru einstakir og ég lærði gríðarlega mikið á að vinna með þér.“

Eiður Arnarsson skrifar: „Við kynntumst fyrir meira en 35 árum og brölluðum mikið saman í mörg ár þar á eftir. Ekki bara mjög góður saxófónleikari með einstaklega fallegan tón, heldur líka góður maður og mikill vinur vina sinna. „Góður í gegn“ - Þannig hugsaði ég gjarnan til þín.  Þín verður sárt saknað kæri vinur. PS Hver einasta nóta í kvöld verður fyrir þig.

\"\"Söngkonan Sigríður Guðnadóttir skrifar:

„Maður er bara sleginn að fá þessar fréttir og er einmitt búin að fylgjast með honum hvað hann á fallegt líf. Bið Guð að hjálpa hans nánustu í sorg sinni“

Bjarki Hólmgeir Halldórsson segir:

„Árið 2019 er búið að taka frá okkur tvo góða tónlistarmenn með stuttu millibili, á besta aldri. Annar er Halli Reynis en hinn er ágætur kunningi minn, Einar Bragi. Við spjölluðum oft um tónlist og það var gott að leita ráðlegginga hjá honum, sérstaklega ég gaf út fyrri plötuna mína, Okkar spor. Megi minning hans haldast á loft í gegnum handbragð hans í tónlistinni.“

Hér fyrir neðan má hlýða á lagið Landið mitt eftir Einar Braga: