Grétar náði myndbandi af sóða: „þetta er svaka geðslegt hjá þér, maður“ - sjáðu myndbandið

Grétar Ólason birti myndband á Facebook vegg sínum þar sem sést hvar maður pumpar mótorolíu úr bílnum sínum beint í grasið. Atvikið átti sér stað á bílastæði nálægt Keflavíkurflugvelli í gær. Í samtali við Hringbraut segir Grétar maðurinn hafi helt um hálfum lítra af mótorolíu í grasið.

„Ég sat nú bara þarna í bílnum og var að bíða eftir fólki þegar ég sé að þessi bíll kemur. Hann fer að mæla olíuna á bílnum og keyrði svo út að grasinu og þá fór ég að fylgjast með honum. Þar opnar hann húddið aftur og sækir slöngu og setti hana í vélina á bílnum. Þá fór ég og keyrði nær honum, þá sá ég hvar hann var að pumpa olíu út úr vélinni beint í grasið. Ég fer þá til hans og ræði við hann og þá snýr hann sér bara við, eins og myndbandið sýnir. Hann flúði svo bara af vettvangi,“ segir Grétar.

Á einum stað í myndskeiðinu má heyra Grétar reyna tala um fyrir manninum:

„Þetta er svakageðslegt hjá þér, maður, að setja þetta beint í gróðurinn.“

Maðurinn svaraði því engu og hélt áfram sóðaskappnum.

Grétar segir í samtali við Hringbraut að maðurinn hafi helt um hálfum lítra af mótorolíu í grasið og að þetta sé alls ekki gott fyrir gróðurinn á svæðinu.

„Þetta er náttúrulega bara sóði,“ sagði Grétar að lokum.

Hér að neðan má svo sjá myndbandið.