Gréta maría grétarsdóttir hjá jóni g.: spyrjum okkar hvernig við getum einfaldað fólki lífið!

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, er gestur Jóns G. í kvöld en Gréta og Krónan fengu Viðskiptaverðlaun Viðskiptablaðsins og Frjálsrar verslunar um áramótin. Þetta er fróðlegt viðtal við Grétu en í áliti dómnefndar Viðskiptablaðsins er sérstaklega tekið til þess hve umhverfismál Krónunnar vega mikið í rekstrinum – en Krónan getur státað af nokkrum umhverfisverðlaunum, eins og Kuðungnum og Umhverfisverðlaunum atvinnulífsins 2019; Framtaki ársins. Þá hafa tvær verslanir Krónunnar fengið Svansvottun.  „Við finnum mikinn meðbyr í umhverfismálum og þau koma mjög við sögu þegar gengið er um verslanir okkar. Við spyrjum okkur daglega að því hvernig við getum einfaldað fólki lífið!,“ segir Gréta María.

Skemmtilegt viðtal kl. 20:30 í kvöld hjá Jóni G.