Greta: „hitamet ekki slegin heldur er þeim rústað“

Mikil hitabylgja er nú að ganga yfir Evrópu og hefur meðal annars hitametið í París verið slegið. Hitinn náði 43 gráðum í dag og gáfu yfirvöld út rauða viðvörun vegna hitans. Aldrei hefur verið heitara í París en gamla hitametið er síðan 1947. Veðurfræðingar segja að hitamet verði líklega slegin víðs vegar í Evrópu á morgun. Búist er við að hitametið í Þýskalandi verði slegið með þremur gráðum á morgun.
 
Yfirvöld víðs vegar um Evrópu eru búin að grípa til sérstakra varúðarráðstafana vegna hitans sem má búast við á næstunni. Sjálfboðaliðar Rauða krossins í París hafa meðal annars dreift vatni og komið fólki í skjól frá sólinni. Lundúnum var lögregla kölluð til, vegna óláta í biðröðinni að vinsælli sundlaug í borginni og hafa lestarsamgöngur í borginni raskast. 37 stiga hiti var í Lundúnum í dag. Yfirvöld hvetja alla til að drekka nóg af vatni og halda sig sem mest í skugga. Landlæknisembættið á Íslandi vill beina því til allra íslenskra ferðamanna að halda áfengisneyslu í hófi og drekka vatn í staðinn.
 
Sænski umhverfisverndarsinninn Greta Thunberg segir að að hitametin í Evrópu séu ekki bara slegin heldur rústað.
 

42,6 °C in Paris. The heat records are not just being broken all over the place... they are being smashed.
New record in Paris by over 2° and in Lille by almost 3° C... https://t.co/22jIMMyAqD

— Greta Thunberg (@GretaThunberg) July 25, 2019