Grensásprestur sekur um kynferðisbrot

Ólafur Jóhannsson, sóknarprestur í Grensáskirkju í Reykjavík, hefur í tveimur málum gerst sekur um siðferðisbrot, samkvæmt úrskurði úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar sem birtur var í gær. Fréttablaðið greinir frá málinu í dag.
 
Fimm konur kærðu klerkinn á síðasta ári til nefndarinnar fyrir kynferðisbrot og kynferðislega áreitni. Nefndin komst að því að í þremur málum hafi háttsemi sóknarprestsins ekki falið í sér aga- eða siðferðisbrot. Hún komst aftur á móti að því að í tveimur málum hafi séra Ólafur brotið gegn konum og farið þannig gegn siðferðisreglum kirkjunnar. Þetta hafi gerst þrátt fyrir að sóknarpresturinn hafi fengið áminningu árið 2011 frá þáverandi formanni fagráðs þjóðkirkjunnar vegna óviðeigandi framkomu gagnvart þremur konum. Þá er greint frá því í Fréttablaðinu að biskupi sé falið að ákveða refsingu Ólafs.