Framsóknarflokkurinn ber flest einkenni þjóðernispopúlisma eins og þau birtast í Evrópu, en fellur í mengi mildari útgáfu slíkra flokka. Hann hefur tekið stakkaskiptum undir forystu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.
Þetta er niðurstaða Eiríks Bergmanns Einarssonar prófessors í stjórnmálafræði við Bifrastarháskóla, í fræðigreininni „Populism in Iceland: Has the Progressive Party turned Populist?“ sem birtist í tímaritinu Stjórnmál og stjórnsýsla í dag.
Prófessoirinn greinir Framsóknarflokkinn eins og hann hefur birst kjósendum á síðustu misserum og ber hann saman við flokkinn undir forystu fyrri formanna hans á árum áður. Í rannsókninni er flokkurinn borinn saman við þjóðernispopúlískar heyfingar í Evrópu sem hafa fengið byr í seglin á undanliðnum áratug. Í rannsókninni er þjóðernishyggja skilgreind sem tortryggni gagnvart fjölmenningu, trú á sterkan leiðtoga og þar sem greinarmunur er gerður á milli \"okkar\" og \"hinna\".
Niðurstaða Eiríks Bergmanns er sú að Framsóknarflokkurinn undir forystu Sigmundar Davíðs hafi breyst í þjóðernispopúlískan flokk.