Greindist eftir þungunarpróf

"Krabbamein í eistum er algengasta krabbamein karla á aldrinum 25-45 ára hér á landi. Á hverju ári greinast um tíu karlmenn og er meðalaldur við greiningu 35 ár," skrifar Ágúst Óskar Gústafsson heimilislæknir undir flipanum sérfræðingar hér á hringbraut.is og minnir á að nú læknist vel yfir 90 prósent allra sem greinast með sjúkdóminn.


Hann segir í tilefni af Mottumars að "margir karlmenn séu feimnir við að ræða sjúkdóma sem tengjast ristli, blöðruhálskirtli og eistum." Mottumars sé einmitt frábært átak sem hafi gert það að verkum að æ fleiri karlmenn biðja um læknisskoðun vegna óþæginda í pung og eistum. Enn séu þó alltof margir karlmenn sem bíði of lengi með vanda sinn og rifjar Ágúst upp sögu af því tilefni: "Fyrir nokkrum árum starfaði ég á sjúkrahúsi. Þá fékk ég til mín tveggja barna föður sem hafði fundið fyrir óþægindum í öðru eistanu í nokkra mánuði. Hann kom ásamt eiginkonu sinni og börnum sem biðu á biðstofunni. Ég ætlaði varla að trúa mínum eigin augum þegar hann sýndi mér annað eistað á sér en það var margfalt stærra en hitt, grjóthart og óreglulegt í laginu. Þetta vakti hjá mér margar spurningar en fyrst og fremst var þetta lifandi dæmi um hrikalegar afleiðingar þess að bíða lengi með vandamálin."


Helstu einkenni krabbameins í eistum eru verkur eða óþægindi í pung, hnútur eða stækkun á eista, þyngslatilfinning eða skyndileg vökvasöfnun í eista, óþægindi í neðri hluta kviðar eða nára og stækkun eða eymsli í brjóstum. Og Ágúst segir sögur í pistli sínum á hringbraut.is, svo sem þessa af karlinum sem trúði því ekki að konan sín væri ólétt og hélt að þungunarprófið væri gallað: "Hann tók sig til og gerði þungunarpróf á sjálfum sér sem reyndist jákvætt. Skýringin á þessu er að ákveðin tegund af eistnakrabbameini getur myndað hormónið β-HCG (human chorionic gonadotropin) sem myndast einnig á meðgöngu og veldur jákvæðu þungunarprófi."  


Pistill Ágústar í heild sinni hér: