Greiðir tæpa sjö milljarða fyrir icelandair hotels: vill lúxushótel á íslandi

Malasíska fyrirtækjasamsteypan Berjaya Land Berhad mun greiða 53,6 milljónir dala, sem er jafnvirði um 6,7 milljarða króna, fyrir 75 prósent hlutafjár í Icelandair Hotels og þeim fasteignum sem tilheyra hótelrekstrinum. Stofnandi Berjaya Land Berhad er milljarðamæringurinn Vincent Tan sem er þekktastur fyrir að vera eigandi breska knattspyrnufélagsins Cardiff City. Þetta kemur fram í Markaðinum í Fréttablaðinu í dag.

Þar segir að kaup malasíska risans  séu háð því að skuldir Icelandair Hotels verði endurfjármagnaðar með nýjum lánum upp á 64 til 72 milljónir dala sem jafngildir átta til níu milljörðum króna.  

Í tilkynningu malasíska félagsins er einnig tekið fram að kaupin í Icelandair Hotels geri félaginu kleift að hefja innreið á íslenskan markað fyrir lúxushótel en fjárfestar telja að það eigi eftir að vax enn frekar þegar til framtíðar sé litið.

Tekjur Icelandair Hotels, sem rekur alls þrettán hótel auk sumarhótelkeðjunnar Hótel Eddu, námu 97 milljónum dala, jafnvirði 12,2 milljarða króna á síðasta ári.