Greiddi bætur vegna kynlífs

Hæstu bæturnar sem Fjarskipti hf., móðurfélag Vodafone, hefur verið dæmt til að greiða vegna gagnalekans í nóvember 2013, voru 1,5 milljónir króna og kemur kynlíf þar við sögu.

Eftir því sem fram kemur í Fréttablaðinu í dag var 2.566 skilaboðum er vörðuðu konu sem fékk hæstu bæturnar lekið á netið. Þar með urðu viðkvæm og persónuleg mál hennar öllum sýnileg, kynlíf, fjármál og meint fíkn.

Meðal gagna sem láku út voru pólitísk skilaboð. Gunnar Bragi Sveinsson hafði sem dæmi sent sms sem vakti athygli þegar því var lekið á netið. 3. mars árið 2011 þegar þingheimur beið þess að fiskveiðistjórnunarfrumvarp Jóns Bjarnasonar, þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, yrði lagt fram skrifaði Gunnar Bragi Vigdísi Hauks og sendi í sms-i: „Erum að fara á leyndófund í LÍÚ segi þér síðar.\" Fréttastofa Rúv orðaði það þannig í sinni frétt að Gunnar Bragi hefði orðið fyrir barðinu á tölvuþrjótum. Í umræðunni sem skapaðist síðar birtist sú skoðun hjá sumum að íslenska þjóðin hefði orðið fyrir barðinu á sambandi stjórnmála og ráðandi viðskiptalífs.

Gunnar Bragi útskýrði sms sitt síðar sem grín. Hann lögsótti ekki Vodafone vegna \"grínsins\".