\"Skálaverðir Ferðafélags Íslands, og þá einkum skálaverðir í Hrafntinnuskeri, hafa unnið björgunarafrek á hálendinu síðustu vikur. Þeir hafa tekið á móti grátandi ferðamönnum sem hafa alls ekki verið búnir til göngu í snjó og krapa.\"
Svona lýsir Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands ástandinu inn til óbyggða landsins þar sem saman fer óvanalega mikill snjór og stórfjölgun ferðafólk sem vill skoða gersemar landsins að Fjallabaki.
Hann segir í samtali við Fréttablaðið í dag að skálaverðir félagsins fari iðulega á móti vanbúnum og hræddum ferðamönnum og þá ekki síður á eftir þeim og beru þá kalda og hrakta upp í skála. Fjölmörg dæmi séu um að illa búnir og hraktir ferðamenn á eigin vegum hafi brostið í grát á hálendinu að undanförnu vegna vanlíðanar og hræðslu. Sumir hafi verið mjög illa á sig komnir.
\"Skálaverðirnir hafa staðið sig ótrúlega vel í þessum krefjandi aðstæðum,“ segir Páll, en leggur áherslu á að ferðaþjónustuaðilar sem selja erlendum ferðamönnum bæði göngu- og rútuferðir inn á hálendið í júní og langt fram á haust þurfi að horfast í augu við staðreyndir.
\"Undanfarin 20 ár hefur hálendið að meðaltali verið opið í júlí og ágúst. Það hefur tekist vel að markaðssetja Ísland en það þarf að taka tillit til þeirra aðstæðna sem ráða á hálendinu. Menn verða að sýna ábyrgð og upplýsa ferðamenn um þær aðstæður sem þeir geta lent í ef þeir eru svona snemma eða seint á ferðinni,“ segir hann við blaðið.