Mikill titringur er innan Framsóknarflokksins vegna fyrirhugaðrar innleiðingar þriðja orkupakkans. Þingflokkurinn er sagður einhuga með málinu en þungavigtarmenn innan grasrótar flokksins eru sagðir beita sér af hörku gegn málinu og hafi hótað því að segja sig úr flokknum og ganga til liðs við Miðflokkinn, fari svo að þingflokkurinn taki ekki „rétta“ afstöðu.
Fréttablaðið greinir frá þessu í dag og hefur heimildir fyrir því að vel finnist fyrir þrýstingi andstæðinga málsins í garð ráðherra og þingmanna flokksins, þótt um háværan minnihluta sé að ræða.
Aðspurður um orðróminn um að andstæðingar þriðja orkupakkans hyggist segja sig úr flokknum segir Frosti Sigurjónsson, helsti talsmaður Orkunnar okkar og fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, í samtali við Fréttablaðið: „Ég er ekki að fara neitt.“ Hann bætir við að á meðan hann nái eyrum forystumanna flokksins og að talsamband sé á milli þeirra þrífist hann vel innan Framsóknarflokksins. Orkan okkar er sem kunnugt er með öllu mótfallin innleiðingu þriðja orkupakkans.
Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir í samtali við Fréttablaðið að þrátt fyrir að umræðan sé hávær í flokknum sé meirihluti flokksmanna þögull. Málið sé enda það bæði flókið og torskilið en margir fylgist þó með á hliðarlínunni án þess að blanda sér í umræðuna.
„Við erum auðvitað fyrst og fremst Framsóknarflokkur en ekki afturhaldsafl,“ segir Silja Dögg um afstöðu sína og annarra þingmanna flokksins til málsins. Hún bendir á að flokkurinn hafi sprottið úr Samvinnuhreyfingunni og að áherslan á samvinnu gildi ekki bara um samvinnu við aðra flokka heldur samvinnu við aðrar þjóðir líka.
Mjög erfitt mál fyrir flokkinn
Karl Garðarsson, framkvæmdastjóri Frjálsrar fjölmiðlunar og fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, ræddi þennan vanda sem Framsóknarflokkurinn stendur frammi fyrir í Ritstjórunum í 21 á Hringbraut á þriðjudagskvöld.
Þar sagði hann meðal annars: „Þetta er mjög erfitt mál fyrir Framsóknarflokkinn, ekki síst vegna þess að hann er að berjast við Miðflokkinn um fylgi. Miðflokkurinn hefur mjög skýra stefnu í þessu máli, og þá er mjög erfitt fyrir Framsóknarflokkinn, gagnvart sinni grasrót, að vera svona beggja blands í málinu, þora ekki að taka skrefið til fulls og vera á móti þessu eins og er í rauninni stefna flokksins, það sem að flokksstofnanir innan flokksins hafa viljað. Þetta er mjög erfitt líka fyrir ráðherra flokksins út af því. Við sjáum það í nýjustu könnunum að Framsóknarflokkurinn, Miðflokkurinn er alveg búinn að ná honum í skoðanakönnunum eftir Klaustursmálið.“
Karl ítrekaði að málið hitti Framsóknarflokkinn mjög illa þar sem flokksapparöt flokksins hafi verið mjög mótfallinn þriðja orkupakkanum. „Þannig að ef ráðherrar flokksins eru að styðja orkupakkann þá eru þeir að ganga gegn sínu eigin flokksfólki og þeim ákvörðunum sem hafa verið teknar í flokknum. Auðvitað er það erfitt, mjög erfitt í öllum flokkum, því að menn ætla að gera það til að halda stjórnarsamstarfi. Flokkurinn er klofinn, þannig séð, hvað þetta varðar líka. Þetta er ekkert einhugur innan Framsóknarflokksins um þetta mál frekar en í öðrum flokkum.“
Umræður Karls og Jóns Kaldals um málið í Ritstjórunum í 21 er að finna í heild sinni hér: