Grasið kemur í stað harðari efna

Þrefalt meira magn af maríjuana var haldlagt á síðasta ári samborið við árin þar á undan samkvæmt samantekt Ríkislögreglustjóra sem greint er frá í Morgunblaðinu í dag. Þar segir að einnig hafi margfaldast sá fjöldi af LSD-skömmtum sem lagt var hald á, en lögregla og tollgæsla tóku í sína vörslu 2,761 skammt af LSD á síðasta ári en aðeins 115 skammta á árinu á undan. Samdráttur varð í flestum öðrum efnum samkvæmt bráðabirgðatölum lögreglunnar. Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi segir sömu þróunar gæta áfram og vart varð strax eftir hrun en þá datt botninn úr innflutningi á kókaíni og ólöglegu amfetamíni en neysla á grasi jókst að sama skapi.