Grasið einfaldlega grænna í noregi

Verkfræðingur sem flutti frá Íslandi fyrir fimm árum segir ekki hægt að jafna saman veraldlegum lífsgæðum  hinum megin við Atlantshafið og hér.

Ekki sé að undra að menntað fólk flykkist til útlanda.

Margir hafa varað við þróuninni og lýst áhyggjum af spekileka eða því sem kallast brain drain. Morgunblaðið sagði fyrst frá sláandi tölum þar sem fram kemur að fordæmalaust er miðað við uppgangstíma hve margir kjósa að flytja út.

Í ummælum við viðbragðsfrétt á visir.is vegna fréttar Morgunblaðsins segir Arnar Jónsson verkfræðingur  að hann hafi flutt úr landi fyrir 5 árum til Noregs. „Á þessum fimm árum hef ég keypt mér hús, fínan bíl og losað mig við allar skuldir á Íslandi,“ segir Arnar.

Hann segist eiga allt að 45% eftir af laununum um hver mánaðamót eftir að hafa greitt reikninga.  Ef það væri „mannlegt“ að búa á Íslandi gæti hann hugsað sér að flytja heim aftur en hann nenni ekki að snúa aftur í þessa „þrælastarfsemi“ sem viðgangist hér heima.

Það er ekki síst vaxtamunurinn sem Arnar segist finna fyrir. Vextir hans á norsku húsnæðisláni séu 2,3% á húsnæðisláninu hans. Hann finni ekki fyrir afborgunum og sjái lánið lækka í hverjum  mánuði.

„Grasið er bara mikð grænna hérna megin,“ skrifar Arnar Jónsson verkfræðingur.

Úttekt Morgunblaðsins á landflótta Íslendinga til nágrannalandanna  hefur vakið  mikla eftirtekt. Tölurnar spyrja ekki síst spurninga um hvaða aðstæður blasa við menntafólki hér á landi, stefnu stjórnvalda og peningamálastefnu Seðlabankans.

Þorsteinn Sæmundsson þingmaður telur að það geti bjargað miklu að reisa  áburðarverksmiðju á Íslandi. Hann er hvergi af baki dottinn hvað varðar þá hugmynd eins og lesa má um hér.