Grandi: hvað eruð þið ósátt við?

Stjórn Granda vill vita af hverju stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna sé ósátt við starfsemi HB Granda.

\"Sú stjórn sem nú situr hefur verið einhuga um þá stefnu, uppbyggingu og rekstrarstýringu sem mótuð hefur verið og fylgt hjá félaginu. Stjórnin hefur einnig innleitt í áföngum „Stjórnarhætti fyrirtækja“ í samræmi við leiðbeiningar frá Viðskiptaráði, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq. Stjórn félagsins telur sig því hafa unnið vel fyrir félagið og hlutahafa þess eins og rekstrarárangur liðins árs sýnir,\" segir í yfirlýsingu.

Aðalfundur félagsins fór fram í gær þar sem metarður til eigenda var staðfestur.  En ekki eru allir sáttir: \"Skömmu fyrir aðalfundinn óskaði Lífeyrirssjóður verzlunarmanna eftir margfeldiskosningu við kjör til stjórnar HB Granda hf. Jafnframt hefur einstaklingur sem var í stjórn Lífeyrissjóði verzlunarmanna, en er í dag í varastjórn lífeyrissjóðsins, sent inn framboð til stjórnar HB Granda hf. Af þessu má ætla að fyrri stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna hafi verið ósátt við rekstur HB Granda hf. og óskað margfeldiskosningar til að kalla eftir breytingum á stjórn félagsins og starfsemi þess,\" segir í yfirlýsingu stjórnar HB Granda.

\"Stjórn HB Granda hf. er ekki kunnugt um hvað það er sem fyrri stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna er ósátt með í starfsemi félagsins. Fyrir starfsmenn HB Granda hf. hluthafa og stjórn er mikilvægt að sátt ríki um forystu félagsins og skýrt komi þá fram ef ágreiningur er um mikilvæga þætti í rekstri þess og í hverju sá ágreiningur felst. Með því að draga framboð sitt til baka að sinni vill stjórn HB Granda hf. skapa svigrúm fyrir nýja stjórn Lífeyrirssjóðs verzlunarmanna svo hún geti farið yfir málið og eftir atvikum skýrt afstöðu sína varðandi stjórn og starfsemi HB Granda hf,\" segir í yfirlýsingu.

Starfsemi HB Granda hf. skilaði á síðasta rekstraári 6,5 milljarða króna hagnaði.