Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, er gestur Jóns G. í kvöld. Þeir ræða meðal annars 4. iðnbyltinguna í álinu sem snýst ekki síður um aukna upplýsingatækni en sjálfvirknivæðingu. Íslensku álverin þykja með þeim allra fullkomnustu í heimi og umhverfisvænustu þar sem þau nýta rafmagn frá vatnsorku. Ragnar segir að íslenskt ál geti orðið að þekktu vörumerki á næstu árum sem Grænt ál. Um 5 þúsund starfsmenn starfa núna í álklasanum. Innlendur kostnaður álveranna hefur legið á bilinu 80 til 100 milljarðar og skapar áliðnaðurinn þannig fjölda fyrirtækja tekjur sem samsvara þeirri fjárhæð.
Grænt ál að verða vörumerki
Fleiri fréttir
Nýjast