Hlutabréfaverð í Icelandair hækkaði um 3,28% í 242 milljóna króna viðskiptum í Kauphöllinni í dag. Í morgun bárust fréttiraf því að WOW air hyggðist ráðast í 6 til 12 milljarða skuldabréfafjármögnun og stefnir fyrirtækið að því að klára umrædda fjármögnun í ágúst.
Verð á bréfum í Origo hækkaði einnig í Kauphöllinni í dag eða um 3,00% í 80 milljóna króna viðskiptum. Í morgun var birt tilkynning í Kauphöllinni þess efnis að stefnt sé að sölu á þriðjungshlut í Tempo til alþjóðlega fjárfestingasjóðsins HPE.
Verð á hlutabréfum í Högum hækkaði einnig um 1,07% í 138 milljóna króna viðskiptum í Kauphöllinni í dag. N1 hækkaði jafnframt um 1,48% í 114 milljóna króna viðskiptum í dag.
Nánar á
http://www.vb.is/frettir/graenn-dagur-i-kauphollinni/149064/