Grænland á góða framtíð

Þrettán ár eru síðan að skákfélagið Hrókurinn steig á land með fríðu föruneyti á suður Grænlandi og hélt þar heilmikið skákmót. Söguna þekkja flestir um hvað á eftir kom en þekking innan félagsins á landi og þjóð hefur safnast saman í gegnum árin. Hrókurinn hefur verið mikið í þorpinu Kulusuk á austurhluta landsins en ekki síður langt í norðri, á vesturhluta eyjunna og víðar og víðar.

Hrafn Jökulsson, forseti skákfélagsins ræddi meðal annars framtíð Grænlendinga sem hann hefur mikla trú á. \"Eftir um fimmtíu ár eða svo verður ekki verra að hafa Grænlendinga sem nágranna frekar en nú er\". Þeim mun vegna vel, fullyrðir Hrafn í drjúgu og góðu viðtali á Hringbraut í kvöld uppúr kl.21.