Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, stýrði í dag fyrsta fundi nýs Þjóðhagsráðs í dag. Hagstjórn, velsældarmælikvarðar, greiðsluþátttaka sjúklinga og grænir skattar voru til umræðu á fundinum.
Samspil peningastefnu, fjármálastefnu hins opinbera og ákvarðana á vinnumarkaði við núverandi aðstæður var umfjöllunarefni erindis sem Daníel Svavarsson, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans, flutti. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti undirbúning fjármálaáætlunar og velsældaráherslur. Þá fór Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, yfir greiðsluþátttöku sjúklinga, stöðuna, aðgerðir og áhrif á ráðstöfunartekjur. Að lokum fór Tómas Brynjólfsson, skrifstofustjóri skrifstofu efnahagsmála í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, yfir græna skatta, hvata og ívilnanir.
Markmið Þjóðhagsráðs er sagt vera að styrkja samhæfingu hagstjórnar og ákvarðana á vinnumarkaði með hliðsjón af efnahagslegum og félagslegum stöðugleika og áhrifum á loftslagsmál. Þjóðhagsráð á að fjalla um stöðu í efnahags- og félagsmálum og ræða samhengi opinberra fjármála, peningastefnu og kjaramála í tengslum við helstu viðfangsefni hagstjórnar hverju sinni. Í ráðinu sitja forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, seðlabankastjóri, forseti ASÍ, formenn BSRB, BHM og KÍ og framkvæmdastjóri SA. Alls eru þetta tíu manns, fimm konur og fimm karlar.
Grænir skattar og greiðsluþátttaka sjúklinga ræddir á fyrsta fundi nýs þjóðhagsráðs
Fleiri fréttir
Nýjast