Græðir - en telur sig ekki vanhæfan

Einn flutingsmanna frumvarps um lækkun veiðigjalda sem nú er til meðferðar á Alþingi er Sigurður Páll Jónsson, þingmaður Miðflokksins, en ljóst vvirðust að hann hafi verulegan fjárhagslegan ávinning af því.

Sigurður á allt hlutafé í fyrirtækinu Kári ehf. en það á aflahlutdeildir sem eru metnar á 106 milljónir. Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Ef frumvarpið verður að lögum mun fyrirtæki Sigurðar fá um eina milljón í afslátt af veiðigjöldum.

Fréttablaðið hefur eftir Sigurði að hann telji sig ekki vanhæfan til að flytja frumvarpið þrátt fyrir að hann eigi útgerðarfyrirtæki.

Miðað við núgildandi lög þarf fyrirtæki Sigurðar að greiða um fjórar milljónir í veiðigjöld en ef frumvarpið verður að lögum lækkar sú upphæð í tæplega þrjár milljónir.