Græðgi og terrorismi uppspretta átaka

Mikla athygli vakti þegar upptökur fóru fram fyrr á þessu ári í menningarhúsinu Hofi á Akureyri á tónlist sem samin var fyrir bíómynd frá Hollywood.

Atli Örvarsson tónskáld, sem gert hefur m.a. garðinn frægan fyrir tónlist sína í Hrútum Gríms Hákonarsonar, samdi tónlistina í félagi við samstarfsmann. Myndin nefnist The Perfect Guy og verður frumsýnd á morgun, 11. september næstkomandi. „Þetta verður gaman,“ segir Atli Örvarsson í samtali við Hringbraut. Hann lýsir myndinni sem sálfræðilegum spennutrylli.
Atli situr ekki auðum höndum þessa dagana. Þeir Óskar Jónsson kvikmyndagerðarmaður eru í viðræðum um að Atli geri tónlist fyrir fyrirhugaða bíómynd Óskars sem gengur undir vinnuheitinu „Fyrir framan annað fólk“. Þar sé um að ræða rómantíska tragíkómedíu.
Þegar Hringbraut falaðist eftir fréttum af öðrum tilvonandi afurðum úr smiðju Atla, upplýsir tónskáldið að hann hafi fyrir nokkru þegið boð um að semja tónlist fyrir teiknimynd sem nefnist Bilal og kemur frá Dubai. Tilurð þeirrar teiknimyndar hefur vakið nokkra athygli fyrir þær sakir að hluti Hollywood-leikara sem var boðið að leika í myndinni gat ekki hugsað sér að taka þátt vegna neikvæðni gagnvart múhameðstrú og menningu Miðausturlanda.
„Þetta er eiginlega mynd um víkingasögurnar í arabaheiminum. Hún gerist á þeim tíma þegar múhameðstrú verður til, fjallar um einn af lærisveinum Múhameðs. Eins og við Íslendingar þekkjum er víða neikvæður andi út af heimsmálunum í garð múhameðstrúarmanna, en ég sló til og finnst hreinlega gott að þessi mynd sé gerð. Það er mikilvægt að stuðla að því að brjóta niður hatrið og fordómana og reyndar varð ég frekar hrifinn af skilaboðunum í myndinni sem eru um átök terrorisma og græðgi. Það eru þessir tveir pólar sem fita hvor annan,“ segir Atli Örvarsson tónskáld og bætir við brosandi að hann telji sig nokkuð öruggan í þessu tilliti á Akureyri.
Hringbraut hefur áður upplýst um fyrirætlan Atla að flytja til frambúðar með fjölskyldu sinni frá Los Angeles til Akureyrar, ekki síst vegna hagsmuna barna hans og hinnar bandarísku eiginkonu Atla, Önnu. Fjölskyldan hyggst njóta frelsisins, tímasparnaðarins og öryggisins sem fylgir vistaskiptunum norður en Atli mun áfram sinna ýmsum störfum vestra og um allan heim raunar sem tónskáld fyrir bíómyndir og sjónvarpsþætti. Tónskáldið segir þetta mögulegt með aðstoð Internetsins en væntir þess þó að verða nokkuð á faraldsfæti.