Meiri arðsemi eigin fjár var hjá Bláa lóninu og Jarðböðunum við Mývatn á síðasta ári en hjá nokkrum öðrum félögum á Aðalmarkaði Kauphallarinnar. Þetta kemur fram í frétt Viðskiptablaðsins.
Arðsemi eigin fjár hjá samstæðu Bláa lónsins var 85% á síðasta ári. Á sama tímabili var arðsemi eigin fjár hjá Jarðböðunum við Mývatn 65%.“Það Kauphallarfélag sem kemst næst baðstöðunum hvað arðsemi eigin fjár varðar er Nýherji, en félagið hafði 36% arðsemi eigin fjár í fyrra. Icelandair hafði um 19% arðsemi eigin fjár,“ segir í frétt Viðskiptablaðsins.
Bláa lónið hf á fjórðungshlut í Jarðböðunum.