“Stóru” bankarnir okkar eru þó mjög smáir í alþjóðlegum samanburði. Þó að allir stóru bankarnir á Íslandi myndu sameinast kæmust þeir ekki á lista yfir stærstu banka á Norðurlöndunum. Heildareignir þeirra eru minni en eignir Sydbank í Danmörku.
Þetta skrifar Thomas Möller í nýjasta pistlinum sínum á hringbraut.is, en málefnaleg og greinargóð skrif hans á síðunni vekja gjarnan mikla athygli. Í pistlinum fagnar hann fram kominni hagræðingu innan íslenska bankakerfisins, en honum finnst þó ekki nóg að gert: \"Fjöldi útibúa á Íslandi er um 40 á hverja 100 þúsund íbúa meðan sama hlutfall er um 15 í norður Evrópu,\" bendir hann á.
Hann kallar eftir kröfugri samkeppni á bankamarkaði: \"Þjónustutekjur banka og kostnaðarhlutfall þeirra eru mun hærri hér á landi en í nágrannalöndum okkar,\" sem Thomas telur vera til marks um andvaraleysið. Lítil samkeppni og lélegur gjaldmiðill haldi landsmönnum í gíslingu óhagræðis og okurvaxta sem engin önnur þjóð í löndunum í kring myndi láta bjóða sér.
Og bankarnir maki krókinn full til mikið: \"Stóru viðskiptabankarnir þrír, Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn högnuðust samtals um 26,7 milljarða króna á fyrstu þremur mánuðum ársins í ár. Það er rúmum tíu milljörðum króna meira en á sama tímabili í fyrra. Alls hafa bankarnir þrír hagnast um 397,3 milljarða króna frá því að þeir voru búnir til úr innstæðum Íslendinga og eignum föllnu bankanna Kaupþings, Glitnis og Landsbanka Íslands haustið 2008,\" reiknar Thomas og bætir við: \"Nú eru um 2400 dagar liðnir frá hruninu þannig að daglegur hagnaður bankanna þriggja hefur verið um 166 milljónir króna, alla daga ársins.\" Og hann nefnir hér eitt atriði: \"Stóru bankarnir þrír högnuðust um 30 milljarða á þjónustugjöldum á síðasta ári sem nemur um 82 milljónum á hverjum degi.\"
Hans niðurstaða er að það sárvanti samkeppni á íslenskum bankamarkaði.