Söluverðmæti þeirra fjögurra kílóa af kókaíni sem íslenskt par var tekið með í Brasilíu á annan dag jóla gæti verið allt að 560 milljónir íslenskra króna, að því er Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir SÁÁ segir.
Hann segir í samtali við Morgunblaðið í dag algengt að kókaín sé notað sem gjaldmiðill innan fíkniefnaheimsins, t.d. sem greiðsla fyrir smygl. Neyslan hafi minnkað eftir hrun, en sé nú að aukast á ný.
Að sögn Þórarins er verðið á hverju grammi kókaíns á bilinu 15.000 - 20.000 krónur: \"Það fer talsvert eftir styrkleikanum, þ.e. hversu hátt hlutfall er hreint kókaín. Þá er verðið líka mismunandi eftir árstímum og hvenær sólarhringsins viðskiptin eiga sér stað. Verðið er t.d. hærra á sumrin og í kringum áramótin. Það er líka dýrara að kvöldlagi,“ segir Þórarinn við blaðið.