Gott fordæmi að kalla bloggara viðrini?

Árlegt þing Norðurlandaráðs æskunnar stendur yfir í Reykjavík. Jafnréttisráðherra Íslands, Eygló Harðardóttir, opnaði þingið en hún segist oft hafa fengið hatursfull skilaboð í tölvupósti og gegnum samfélagsmiðla.

„Ég held að allt stjórnmálafólk hafi lent í því. Fólk virðist ekki skilja hve særandi svona skilaboð eru. Það skrifar ýmislegt sem það segði aldrei augliti til auglitis,“ sagði Eygló.

Hún telur mikilvægt að stjórnmálamennirnir sýni gott fordæmi og svari ekki í sömu mynt.

„Það versta sem maður getur gert í svona aðstæðum er að gefa tröllunum rými til að tjá sig,\" segir Eygló Harðardóttir.

Ekki alls fyrir löngu kallaði Vigdís Hauksdóttir, flokkssystir Eyglóar, Láru Hönnu Einarsdóttur, bloggara, samfélagsrýni og þýðanda viðrini. Spyrja má hvernig slík orðanotkun fari saman við orð flokkssystur Vigdísar, Eyglóar velferðarráðherra.

Kai Alajoki, forseti Norðurlandaráðs æskunnar, hefur sagt á þinginu að allir stjórnmálamenn og aðrir sem móta umræðuna beri ábyrgð á að vernda ungt fólk frá hatursorðræðu og ofsóknum á netinu.