Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, sagði í þættinum Ólafarnir á Hringbraut sl. fimmtudagskvöld, að aðeins 1% barna á Íslandi væru rangfeðruð en ekki 10%-15% eins og staðhæft hefði verið.
„Þessar tölur um 10-15% rangfeðranir sem koma úr félagsfræðirannsóknum stenst ekki,“ sagði Kári afdráttarlaust í þættinum sem Ólafur Arnarson og Ólafur Ísleifsson stýra.
Hið rétta væri samkvæmt rannsóknum Íslenskrar erfðagreiningar að innan við eitt prósent barna á Íslandi væru rangfeðruð. Það benti til að íslenskar konur „haldi gott bókhald“ eins og Kári orðaði það. Tölur Íslenskrar erfðagreiningar byggðu á rannsóknum á 2-3 kynslóðum Íslendinga, tæpum helmingi þjóðarinnar.
Viðtalið við Kára á Hringbraut má sjá hér.