Gott að losna við nauðgandi presta

Það sem er best við samtímann er að pukrið sem einkenndi fyrri tíma er horfið. Svo segir í pistli tónlistarmannsins og rithöfundarins Doktors Gunna sem hann birtir á bloggi sínu undir fyrirsögninni  „Allir út úr skápnum“.

„Ég er ekki frá því að stemmningin sé alltaf að skána. Svona almenn stemmning „í þjóðfélaginu“. Ég er náttúrlega orðinn svo hundgamall að ég man „tímana tvenna“, jafnvel þrenna.

Einu sinni var svo mikið pukur og leyndó með allt. Í fyrsta lagi þurfti maður að vera í öðru hvoru liðinu, kapítalisti eða kommi, og það var ótrúlega miklu púðri eytt í að rífast um það og meðfylgjandi paranoiju. Nú er eiginlega bara kapítalismi eða ekkert. Og engin lið,“ skrifar doktor Gunni.

Hann rifjar upp að samkynhneigð var talin „kynvilla“ og segir að  \"égerekkitabú átakið\" sem miðast við að opna umræðu um geðsjúkdóma  sé einkar hressandi. „Í gamla daga gat pukrið af sér ógeðslega hluti: hræðilega meðferð á veiku fólki, barnanauðgandi presta, barnanauðgandi meðferðarhæli, „ástandið“ – allskonar hörmungar af  því allt var svo mikið leyndó og pukur – allir í andlegri kreppu með erfiðleikana inn í sér.

En nú er öldin önnur. Ég er að fíla það.“ Skrifar Doktor Gunni.