Google spáir fyrir um hjartasjúkdóma

Gervigreindartækni sem Google hefur þróað gerir kleift að spá fyrir um hjartasjúdóma hjá fólki með því að horfa í augu þess. Um er að ræða kerfi sem les augnbotna fólks til að komast að grunnupplýsingum eins og aldri, kyni, hvort viðkomandi reykir o.s.frv.

Nákvæmni kerfisins er sögð jafn mikil og bestu hefðbundnu aðferðirnar í dag.

Tæknin er þróuð hjá Verily, dótturfyrirtæki Google á sviði heilbrigðistækni. Hún gæti t.d. auðveldað læknum og flýtt fyrir við hefðbundið mat á áhættu fólks gagnvart hjarta- og æðasjúkdómum, þar sem ekki væri þörf á að taka blóðsýni.

Skýrt er frá rannsóknum Google-fyrirtækisins í nýjasta hefti tímaritsins Nature, Biomedical Engineering.

Forritið vann úr sjúkraskrárupplýsingum 300 þúsund manna hóps, með aðferðum vélnámstækni (machine learning), þar sem gervigreind er beitt á gríðarlegt magn upplýsinga með því að forritin þjálfa sig upp á eigin spýtur til að þekkja og bera skynbragð á upplýsingarnar.