Google næstverðmætasta félag í heimi

Google er orðið næstverðmætasta félag í heimi. Hlutabréf hækkuðu um ríflega 16% í gær og hefur aldrei verið hærra en nú. 

Einungis Apple er verðmætara félag en Google, en töluverður munur er þó enn á markaðsvirði félaganna; virði þess síðarnefnda er nú komið yfir 400 milljarða dala samanborið við 745 milljarða dala hjá Apple. 

Markaðsvirði Google jókst um 60 milljarða dala á öðrum ársfjórðungi, eða sem nemur um 8000 milljörðum íslenskra króna. Breska ríkisútvarpið segir að stofnendur félagsins hafi hvor um sig hagnast um fjóra milljarða um helgina.