Google fær háa esb sekt

Margrethe Vestager fer með samkeppnismál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB). Hún var gagnorð og hreinskilin þegar hún átti símtal við aðalframkvæmdastjóra fyrirtækisins Google en hann heitir Sunder Pichai.

Margrethe sagði Sunder Pichai að fyrirtækið Google yrði sektað fyrir gróft brot á reglum ESB um hringamyndun og einokun.

Þetta samtal fór fram aðfararnótt mánudags í Brussel en um eftirmiðdag í Kaliforníu þar sem Google hefur aðsetur.

Þetta er ESB sekt upp á 2,4 milljarða evra. Sektini fylgir greinargerð upp á 242 blaðsíður. Rannsókn ESB á máli Google stóð í 2,401 dag.

rtá

Nánar www.politico.eu