Vinsælar gönguleiðir að Fjallabaki, svo sem hinn margfarni Laugavegur, eru enn að miklu leyti huldar snjó og eru á köflum ill- eða seinfarnar að sögn skálavarða Ferðafélags Íslands á svæðinu.
Til marks um vetrarríkið að Fjallabaki er að ekki sér í dökkan díl í Hrafntinnuskeri, næsta skála fyrir sunnan Landmannalaugar og er útséð með að það svæði, sem vanalega er þakið tjöldum ferðalanga um þetta leyti árs, verði snjólaust í sumar. Þar er enn þykkur snjór í kringum skálann svo langt sem augað eygir.
Aðrar vinsælar gönguleiðis, svo sem Fimmvörðuhálsinn þar sem myndin sem fylgir þessari frétt er tekin fyrir nokkrum dögum, eru einnig mun seinfarnari en í vanalegu árferði, enda sekkur göngufólk í deigan snjó upp að hnjám á löngum köflum leiðarinnar.
Búið er að opna leið inn í Landmannalaugar fyrir 4x4 bíla og einnig er búið að opna töluvert mikið á Norðausturlandi, inn í Kverkfjöll og Dreka, en þaðan má komast inn að Holuhrauni. Enn eru þó flestar leiðir á hálendinu lokaðar. Það styttist þó í að hægt verði að opna Kjalveg allan að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar og þá er opið inn að Hveravöllum að norðan.