Göngin nálgast þolmörk

Gísli Gíslason, sem er stjórnarformaður Spalar, sem á Hvalfjarðargöngin, sagði í hádegisútvarpi Hringbrautar að Hvalfjarðargöngin fullnýtist áður en ný göng verða til. Nú fara um 6.500 bílar um göngin á dag, en hámark er að átta þúsund bílar geti farið um göngin hvern dag.

Miðað við spár um fjölgun ferðamanna og aukinnar umferðar er ljóst að ekki mun takast að tvöfalda göngin áður en þau verða fullnýtt. Hvað verður gert þegar þar að kemur er með öllu óljóst.

Öryggismörk ganganna eru átta þúsund bílar á dag.

Gísli veit ekki hvað verður, en segir reynsluna af Speli vera þá að verði önnur göng gerð eigi að gera það í einkaframkvæmd. Um hálft annað ár þar til Spölur skilar að sér, það er að fyrirtækið afhendi ríkin göng. Þá verður búið að greiða upp öll lán sem tekin voru til að borga göngin.