Gömlu flokkarnir hugsa sinn gang

Formaður Samfylkingarinnar segir að ráðast þurfi í endurreisn flokksins á næstu misserum til að bregðast við slæmu gengi í könnunum. Kafteinn Pírata segir að þjóðin mótmæli meirihlutaræði og sendi ríkisstjórninni vantraustsyfirlýsingu með vaxandi fylgi við þá.
 
Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV í gærkvöld en þar var vitnað til nýrrar fylgiskönnunar Gallup sem sýndi að Píratar eru stærsti stjórnmálaflokkur landsins fimmta mánuðinn í röð, nú með 36 prósent sem er fjórum prósentustigum meira en í síðasta mánuði. Píratar hafa bætt við sig fylgi í Gallup könnunum jafnt og þétt frá áramótum. Kafteinn Pírata segir þjóðina kalla eftir breytingum.
 

Birgitta Jónsdóttir, kafteinn Pírata, segist alltaf vera jafn hissa og þakklát: \"Það sem mig langar að segja við núverandi valdhafa er það, þetta er ákveðin vantraustsyfirlýsing frá þjóðinni til þeirra þannig að nú þurfa þeir sem hafa völdin að bregðast við þessu á einhvern hátt og reyna að skilja hvernig fólk vill koma til þeirra, fólk vill alvöru breytingar,“ sagði hún við RÚV.

Hún segir að fólk vilji ekki þetta meirihlutaræði: \"Við erum hér þingmenn fyrir alla þjóðina og eigum að geta unnið saman að heildarhagsmunum þjóðarinnar.“

Aðra sögu er að segja af fylgi Samfylkingarinnar í Gallup könnun gærdagsins. Það mælist rúm níu prósent sem er þremur prósentustigum minna en í Gallup könnun fyrir mánuði og er minnsta fylgi í sögu flokksins. Flokkurinn fengi sex þingmenn, þremur færri en í síðustu kosningum og 14 færri en í kosningunum 2009. 

Árni Páll Árnason, formaður flokksins, segir að fyrir flokksmenn sé bara eitt verkefni - það sé endurreisn flokksins á næstu misserum: \"Við erum að fara í hana af fullum krafti. Í því felst að stækka flokkinn, efla hann, breikka hann og gera hann aftur að þeirri fjöldahreyfingu sem honum var ætlað að vera í upphafi.“

Árni Páll segir Samfylkinguna hafa séð það á síðustu mánuðum að hún væri að lenda í kröppum dansi en miklar hræringar séu í stjórnmálum almennt: \"Menn verða að skilja hvaða grundvallarhræringar eru í gangi og bregðast við þeim, svara kalli þjóðarinnar, eftir nýjum stjórnmálum, annars konar stjórnmálum, það held ég að sé stóra verkefnið,“ sagði hann við RÚV.

Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir í sama miðli að fylgi flokksins, samkvæmt niðurstöðum þjóðarpúls Gallups, sé óviðunandi. Fylgið hefur ekki mælst minna síðan í nóvember 2008. Þinflokksformaður Samfylkingarinnar segir að fylgistap í könnunum sé óskiljanlegt.
 

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir að flokkurinn þurfi að fara yfir stöðu sína og finna út hvernig hanni nái til kjósenda á ný. Það sé mikið áhyggjuefni að flokkurinn nái ekki til yngri kjósenda. Stuðningur við flokkinn meðal yngstu kjósendanna er einungis 12%: \"Það er alveg ljóst að jafnt við sem aðrir þurfum að hlusta á og kalla unga fólkið til okkar. Ekki segja því hvað við ætlum að gera fyrir það heldur óska eftir því að það segi við okkur hvernig það vilji að við vinnum til þess að við getum náð athygli þeirra.“