Ljósmyndarinn Kjartan Þorbjörnsson, best þekktur sem Golli, hefur sent frá sér mikilvæg skilaboð sem eiga erindi til allra þeirra sem taka eða eiga ljósmyndir, sem eru líklega allir.
„Takið myndir af fólkinu í kringum ykkur. Vinum, börnunum, fjölskyldu, samstarfsfólki, kunningjum ! Ekki bara spariklædd og uppstillt. Notið myndavél, sleppið símafilterum. Passið uppá þessar myndir, ekki henda skrýtnu myndunum. Þetta verða fjársjóðir framtíðarinnar,“ segir Golli í færslu á Twitter sem vakið hefur mikla athygli.
Hann segir svo hjartnæma sögu:
„Ég var í útskriftarveislu og gaf innrammaða mynd sem ég hafði smellt af stúdínunni og föður hennar 2015 á júlínóttu á útiskemmtun í Flatey. Ég var með myndavél og smellti af því sem ég sá, án tilefnis. Mynd sem aldrei verður endurtekin, faðirinn er nú látinn. Mynd er fjársjóður.“
Hann bendir á að aldrei í veraldarsögunni hafa verið teknar jafnmargar myndir og í dag. „Það met verður slegið á morgun o.s.frv. Tilkoma símamyndavél þýðir að allir eru að mynda alltaf. Hið slæma er að flestir eru eingöngu að afmynda sjálfa sig, skapa ímyndir en ekki að mynda náungann og lífið,“ segir Golli.
„Þrátt fyrir allan þann gríðarlega fjölda mynda sem teknar eru á hverjum degi er sú hætta raunverulega til staðar að næsta kynslóð og þarnæsta finni ekki nothæfar myndir af sér í neinu formi þegar þau eldast. Allt filterað í drasl eða týnt í ógleymi gamalla síma og týndra forrita.“