Golfinu frestað, en skíðin framlengd

Það er til marks um tíðarfarið um allt land að opnun golfvalla er frestað, jafnvel ítrekað, en opnunartími skíðasvæða er framlengdur. Muna þeir sem renna sér á tveimur jafnfljótum vart annað eins vor þegar kemur að góðu skíðafæri.


Frostharkan er enda viðvarandi. Ef rýnt er í kortin sést að hiti er langt frá því að komast í námunda við tveggja stafa tölu á næstu dögum og raunar má búast við því að hitinn verði um og undir frostmarki um norðaustan- og austanvert landið fram yfir næstu helgi. Annars staðar á landinu er ekki hægt að búast við meiri hita en frá 0 gráðum að 7 stigum. 


Það er því að vonum að gróður taki seint við sér í svona árferði, en grasspretta er vart eða ekki byrjuð, auk þess sem trén móka enn í vetrardvala sínum og eru fráleitt að sperra sig. Gróðurþekjan er því ennþá mjög viðkvæm á flestum golfvöllum sem þola fyrir vikið lítið álag - og enda þótt velflestir þeirra hafi komið vel undan vetri taka forráðamenn stærstu vallanna ekki þá áhættu að hleypa miklum mannfjölda inn á þá. Nokkrir minni klúbbar hafa hins vegar þegar opnað velli sína.


Í þessum óblíða kaldrana situr snjórinn auðvitað sem fastast. Af þeim sökum er ennþá opið í Bláfjöllum sem er fáheyrt á þessum árstíma, en skilaboðin frá forráðamönnum skíðasvæðisins eru skýr og uppörvandi: "Hér í Bláfjöllum verður opið frá 17:00-21:00 og stefnum á að fá 500 manns í fjallið í kvöld! Koma svoooo, nýta þessa síðustu daga í sólinni!! Lang lang besti dagurinn til þessa."