Gögn um svik geta ekki verið stolin

Það er bara eitt sem vakir fyrir fólki þegar það kemur fjármagni vísvitandi fyrir í skattaskjólum. Það er gert til þess að fela slóð fjármagns sem annars þyrfti að greiða af til samfélagsins. Það er ólöglegt, og það er nauðsynlegt að taka hart á slíkum málum og nýta allra leiða til að afla upplýsinga um þá aðila sem komið hafa fé undan í slíkum fléttum. Um þetta eru allir viðmælendur Heimsljóss á sjónvarpsstöðinni Hringbraut sammála, þau Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans, Indriði H. Þorláksson fyrrverandi ríkisskattsjóri og Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur, en þátturinn er á dagskrá kl. 21.30 í kvöld.
Indriði H. Þorláksson segir í þættinum að ekki sé hægt að skilgreina gögn með listum yfir þá sem komið hafa fjármagni undan til aflandseyja sem stolin. Þetta séu upplýsingar sem boðnar eru stjórnvöldum til að koma höndum á fjármagn sem komið var undan með leynd. Skattsvik veiki innviði samfélagsins og grafi undan samstöðu og samábyrgð, segir Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur. Þórður Snær, sem hefur ítarlega kynnt sér þennan skattsvikaiðnað í blaðamennskutíð sinni, útskýrir í þættinum tilurð og eðli skattaskjóla og þátt Íslendinga í þeim.