Góður smekkur fyrir hrútum

Kvikmyndin Hrútar var kosin besta myndin í flokki nýliða og frumlegra og djarfra verka á kvikmyndahátíðinni í Cannes í gærkvöldi.  Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk kvikmynd í fullri lengd vinnur til verðlauna á þessari virtustu kvikmyndahátíð heims.


Alls voru 19 kvikmyndir tilnefndar í flokknum en um fjögur þúsund myndir sóttu um að komast að. Verðlaunin hafa mikla þýðingu fyrir dreifingu og sölu myndarinnar, bæði í Frakklandi og víða um heim.  Þetta verður að teljast stórkostlegur árangur og mikill sigur fyrir íslenska kvikmyndagerð.