Stefna á samning á fimmtudaginn

Stefnt er að því að niðurstaða viðræðna VR, LÍV, Flóabandalagsins og Stéttarfélags Vesturlands við Samtök atvinnulífsins liggi fyrir á fimmtudag, en félögin hafa frestað verkfalli sínu, sem hefjast átti þann dag, um fimm sólarhringa.


Hugsanlegt er talið að allt að þriggja ára samningur sé í pípunum á milli deilenda í kjaraþrætunni sem fyrir helgi virtist stefna í harðan hnút. Samningalotan um helgina skilaði hins vegar svo góðum árangri að ástæða þótti til að hálfu stéttarfélaganna að fresta boðuðu verkfalli svo sem fyrr segir. 


Tvennt er einkum leiðarstef nýrra samninga, takist þeir á annað borð, en það er lækkun lægstu launa og að samningurinn skili raunverulegri kaupmáttaraukningu á samingstímanum.


Starfsgreinasambandið, sem telur tíu þúsund verkamenn úti á landi, utan þjónustusvæða Flóabandalagsins og Stéttarfélags Vesturlands, heldur hins vegar sínu striki og stefnir á ótímabundið verkfall 6. júní hafi ekki samist fyrir þann tíma, en SGS er ekki í slagtogi með fyrrgreindum verkalýðsfélögum.