Kjaraviðræður Samtaka atvinnulífsins og fjögurra iðnaðarmannafélaga, Félags hársnyrtisveina, Grafíu, MATVÍS og Samiðnar, halda áfram í dag en mjög góður skriður er á þeim viðtræðum að sögn samningafólks.
„Við stefnum að því að ljúka viðræðunum gagnvart þessum fjórum félögum í þessari viku,“ segir Þorsteinn í Morgunblaðinu í dag. Hann kvaðst gera ráð fyrir að skrifað yrði undir kjarasamning öðru hvoru megin við næstu helgi.
Hins vegar slitnaði upp úr viðræðum Félags vélstjóra og málmtæknimanna (VM) og Rafiðnaðarsambands Ísland (RSÍ) við SA í fyrradag og hefur nýr fundur ekki verið boðaður.