Víða mátti lesa falleg skrif í gærdag um Guðbjart Hannesson ráðherra og þingmann sem borinn var til hinstu hvílu frá Akraneskirkju í gærdag. Hann er þjóðinni sannarlega harmdauði, en þúsundir voru viðstaddar útför hans á Skaganum í gær.
Í erfisdrykkjunni að útför lokinni var haft á orði að sjaldan eða aldrei hafi álíka fjölmenni verið saman komið við útför nokkurs manns, en meira og minna allir alþingismenn, fyrrverandi og núverandi, ásamt ráðherrum voru viðstaddir útförina, svo og fjölmargir fulltrúar stjórnsýslunnar.
Eftirmæli, jafnt í blöðum sem á samskiptamiðlum, eru öll á einn veg. Jafnt samherjar „Gutta“ eins og vinir kölluðu hann, sem pólitískir andstæðingar ljúka allir lofsorði á þingmanninn sem laut í lægra haldi fyrir krabbameini eftir stutt stríð.
\"Í dag eru margir sem minnast með hlýju góðmennis sem borið verður til grafar á Akranesi. Guðbjartur \"Gutti\" Hannesson var einn þeirra samferðamanna úr þinginu sem svikalaust var hægt að bera virðingu fyrir. Hann hafði hagsmuni umbjóðenda sinna að leiðarljósi, umvafði verkefni sín mannlegri hlýju og nálgaðist þau af alúð. Það er ekki öllum gefið. Hans tími á vettvangi þingsins hefði mátt verða lengri. Þannig hefði þingið orðið örlítið betra. Hugsa með hlýju til fjölskyldu hans og er þakklát fyrir að hafa fengið að verða honum samferða um hríð,“ segir Helga Sigrún Harðardóttir, fyrrum þingmaður Framsóknarflokksins í færslu á Facebook.
Má segja ummæli hennar lýsandi fyrir hlýjar kveðjur og er fráfall Gutta þjóðinni harmdauði.