Góðir gestir - bein útsending

Katrín Jakobsdóttir verður í viðtali á Þjóðbraut á Hringbraut, í beinni útsendingu sjónvarps og útvarps.

VG, flokkur Katrínar, eykur fylgi sitt þessa dagana. Þá er spurt hvert stefnir í komandi átökum, hvers vegna er flokkurinn svo harður í andstöðu sinni þegar vel árar í samfélaginu? Er undirbúningur kosninganna þegar farinn að marka stjórnmálin? Þetta og margt fleira í viðtalinu við Katrínu.

Þær gegna forystu í velferðarnefnd Alþingis, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir Samfylkingu og Elsa Lára Arnardóttir Framsóknarflokki. Það er margt um að ræða sem lýtur að velferðarmálum, svo sem heilbrigðismálin og húsnæðismál. 

Til að ræða fréttir vikunnar koma í þáttinn þau Jón Magnússon lögmaður og Margrét Kristmannsdóttir framkvæmdastjóri.

Þjóðfélagsumræðan er á Hringbraut, alla daga og ekki síst á sunnudögum milli klukkan tíu og tólf.

Bein útsending í útvarpi og sjónvarpi:

Hér fylgir listi þannig að notendur viti hvar Útvarp Hringbraut er að finna, auk þess sem rafrænn hlekkur er í boði:

89,1 - Bústaðarv. - Reykjavík
91,7 - Hnjúkar      - Blönduósi
91,1 - Hegranes   - Sauðárkróki
89,9 - Hrafnafell   - Egilsstöðum
89,9 - Jórvík        - Selfossi
87,7 - Hallland     - Akureyri
89,9 - Háfell       - Ekki virkt enn.

Hlusta á þátt á netinu: Smella HÉR.