Góðar viðtökur frá fyrsta degi

Óhætt er að segja að viðtökur fólks við dagskrá sjónvarpsstöðvarinnar Hringbrautar hafi verið góðar strax á fyrsta degi útsendinga. Samtal Vigdísar Finnbogadóttur og Sigmundar Ernis Rúnarsson í fyrsta þættinum á stöðinni, Mannamáli, vakti þjóðarathygli en fjölmörg ár eru liðin frá því þessi ástsæli fyrrverandi forseti Íslendinga hefur gefið kost á jafn persónulegu og einlægu viðtali og þar var raunin.


Sjónvarpsstöðin Hringbraut næst á 88 prósent heimila á Íslandi. Dagskráin er send út á ljósnetsrásum 7 hjá Símanum og 25 hjá Vodafone, en auk þess er hægt að ná útsendingum stöðvarinnar í gegnum örbygljuloftnet, annaðhvort með myndlyklum Digital Íslands á rás 35, ellegar án myndlykla á UHV-rás númer 50, eða S-rás númer 15. Öll dagskráin er send út í HD-gæðum, svokallaðri háskerpu, sem gerir það að verkum að stöku áhorfendur hafa ekki náð útsendingum stöðvarinnar nema með því að uppfæra myndlykil heimilisins. Þessum áhorfendum er bent á að setja sig í samband við þjónustuaðila Símans, Vodafone eða Digital Íslands, en mjög auðvelt er að vinda bráðan bug á þessum vanda með aðstoð fyrrgreindra aðila.


Þá er öllum áhorfendum Hringbrautar bent á að setja sig í samband við [email protected] ef þeir hafa ábendingar um efnistök, viðmælendur eða það sem betur má fara í dagskrá og stjórnun þátta á stöðinni.