Góðar hitatölur í kortunum

Hitafarinu verður ágætlega skipt á milli landshluta næstu daga - og er ekki annað að sjá en sumarið hafi loks haft fullan sigur á einum lífseigasta vetri seinni tíma á Ísalandi.

Hitinn slær auðveldlega upp í 18 stigin um suðaustanvert landið í dag, en á morgun færist varminn yfir Norðurland þar sem hitinn nálgast 20 gráðurnar með nokkrum tilþrifum. Bylgjan mjakar sér svo líka yfir á austanvert landið á laugardag, en á sunnudag berst hæg norðaustlæg átt yfir landið sem færir sunnlendingum og vestlendingum kærkominn sumarhita, allt upp undir 18 stigin. 

Viðvarandi hiti er í kortunum um suðvestanvert landið þegar kemur fram í næstu viku en þá verður fremur svalt við norðausturströndina.